← Explorer/Network

"Nobody saw the whole picture": Individuals experiences of symptoms and psychosocial distress related to dampness and/or moisture damage in houses

Sonja Guðnadóttir, Eva Halapi, Hafdís Skúladóttir2025Tímarit hjúkrunarfræðingaQualitative Study
Immune/InnateNeurologicalRespiratory/Sinus

Abstract

Tilgangur Rakavandi og/eða rakaskemmdir í húsum (RSH) eru algeng vandamál og geta valdið RSH-heilkenni. Vöntun er á greiningu og meðferð í tengslum við RSH-heilkenni en þau geta verið óljós, flókin og langvinn. Þeir sem veikjast upplifa lítinn sem engan skilning og stuðning og breytist líf þessara einstaklinga mikið. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna reynslu einstaklinga af RSH-heilkenni og sálfélagslegri líðan tengdri því. Aðferð Eigindleg viðtalsrannsókn þar sem stuðst var við Vancouver-skólann í fyrirbærafræði. Tólf viðtöl voru tekin við níu þátttakendur sem voru fengin í gegnum samfélagsmiðilinn Facebook og með snjóboltaúrtaki. Niðurstöður Heildargreiningarlíkan rannsóknar sýndi ákveðna vegferð þátttakenda þar sem kom í ljós að erfitt hafði reynst fyrir bæði þátttakendur og heilbrigðisstarfsfólk að sjá heildarmynd RSH-heilkennis. Þátttakendur upplifðu margvísleg einkenni sem líktust öðrum veikindum og upplifðu ofurnæmi gagnvart mismunandi loftgæðum. Líkamleg og sálfélagsleg líðan varð ekki aðeins fyrir áhrifum af einkennum heldur einnig af skorti á greiningu og meðferð og neikvæðum áhrifum á fjárhag. Vöntun var á stuðningi og skilningi frá heilbrigðiskerfinu, vinnufélögum, vinum og fjölskyldu. Þátttakendur fundu fyrir einkennum víða. Algjör breyting á lífi varð í kjölfarið. Ályktanir Vöntun er á greiningarskilmerki sem tekur tillit til heildarmyndar tengdri RSH-heilkenni ásamt markvissri heildarmeðferð. Skortur er á stuðningi og skilningi hvort sem um ræðir frá heilbrigðisstarfsfólki, fjölskyldu eða samstarfsfólki og kallað er eftir fræðslu. Breyting á lífi er algjör þar sem líkamleg og sálfélagsleg vanlíðan er áberandi sem og möguleg neikvæð áhrif á fjárhag. Lykilorð Húsasótt, rakavandi og/eða rakaskemmdir í húsum, áhrif á heilbrigði, sálfélagsleg líðan, fyrirbærafræði

Part of Mold & water-damaged buildings research · Curated by Lauren Lowenstein, The Biotoxin Lady

Symptom Clusters

Complete life disruptionMulti-system symptoms mimicking other illnessesPsychological and social sufferingRSH-syndrome (water damage/moisture-related illness syndrome)